24.1.2011 - Fluguhnżtingaefni į góšu verši Úrvalið eykst smám saman
Við vinnum nú að því að bæta við úrval af fluguhnýtingaefni hér í veiðibúð allra landsmanna á netinu.
Nú þegar er fáanlegt túpuefnið frá Eumer í Finnlandi, heimskautarefur, ísbjarnarhár og um þessar mundir bætist við hrosshár í 16 litum.
Hefðbundnar túpur, tvinni, floss og vír ásamt kúlum og keilum er einnig að detta hér inn til afgreiðslu.
Allt efnið sem fáanlegt verður hér hjá Veiðimanninum er einnig til í Veiðihorninu Síðumúla 8 en trúlega má fullyrða að úrval af fluguhnýtingaefni sé hvergi meira hér á landi en einmitt í Veiðihorninu í Síðumúlanum.
Við viljum einnig vekja sérstaka athygli á ódýrum fluguhnýtingaönglum sem við kaupum inn í stórum pakkningum og pökkum sjálf í 100 stykkja pakkningar.
Til baka
|