17.12.2010 - Scierra tvķhendupakkarnir komnir aftur Scierra Sweep tvíhendusettin komu í hús í gær og eru nú á sérstöku jólatilboði.
Scierra tvíhendusettin hafa notið mikilla vinsælda hjá okkur síðustu árin.
Í Scierra Sweep pakkanum er fjögurra hluta tvíhenda, gott hjól úr léttmálmi, undirlína, rennilína og skothaus ásamt sökkenda. Þá fylgir tilsögn um fluguköst með tvíhendu á DVD og síðast en ekki síst er gjöful veiðihúfa í pakkanum.
Verð á Scierra Sweep settunum hefur alltaf þótt mjög hagstætt en aldrei eins og nú því við bjóðum settin á tilboði fyrir jólin á aðeins 39.900.
Settin eru fáanleg í tveim lengdum. Annars vegar 12,9 fet og hins vegar 14,1 fet.
Til baka
|