7.12.2010 - Veišimašurinn opnar į nż Veiðimaðurinn opnar á ný en nú sem netverslun, veiðibúð allra landsmanna.
Nú 70 árum eftir að Albert Erlingsson hóf að þjónusta íslenska veiðimenn í verslun sinni í gamla miðbæ Reykjavíkur opnar Veiðimaðurinn á ný, á nýjum stað og nýjum tíma.
Veiðimaðurinn, veiðibúð allra landsmanna sem hefur göngu sína í dag á internetinu ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum um allt land gott úrval af vönduðum veiðibúnaði á hagstæðu verði en einnig góða, örugga og hraða þjónustu.
Vöruúrval Veiðimannsins er síður en svo orðið tæmandi á fyrsta degi og enn vantar talsvert á að vörulýsingar séu nægar. Úr þessu verður bætt en nýjar vörur bætast við á hverjum degi auk þess sem vörulýsingar verða ítarlegri.
Þakka þér fyrir að fylgjast með Veiðimanninum frá fyrsta degi.
Til baka
|