Vöruleit
Leita
Framśrskarandi og traust fjölskyldufyrirtęki ķ 20 įr
3.12.2010 - Veišimašurinn ķ 70 įr

Albert Erlingsson heitinn eða Albert í Veiðimanninum stofnaði fyrirtæki sitt árið 1940.  Veiðimaðurinn er því sjötugur á þessu ári og elsta veiðivöruverslun landsins.


Fyrst um sinn rak Albert verslunina frá heimili sínu og kallaði hana Veiðiflugugerðina.  Á þeim árum störfuðu nokkrar konur við fluguhnýtingar hjá fyrirtækinu.

Fljótlega flutti Albert verslunina á Lækjartorg þar sem hún fékk hið kunnuglega nafn, Veiðimaðurinn.  Skömmu síðar var starfsemin flutt um set eða í Hafnarstræti 22.  Það hús gekk undir nafninu Smjörhúsið og stóð á horni Hafnarstrætis og Lækjargötu en myndin hér er einmitt af þessu litla húsi sem hýsti margvíslega starfsemi á þeim árum.

Síðar var starfsemin flutt í Hafnarstræti 5, Tryggvagötumegin þar sem nú er rekinn barinn Amsterdam.  Það var svo árið 1987 að Veiðimaðurinn flutti sig um set í húsinu eða að Hafnarstrætinu. 

Rúmum 10 árum síðar eða í ársbyrjun 1998 keyptu núverandi eigendur verslunina og ráku hana fyrst undir nafninu Veiðihornið en síðar aftur undir nafni Veiðimannsins til ársloka 2008. 

Þegar hér var komið við sögu ákváðu eigendur að loka versluninni í gamla miðbænum enda má segja að verslunarrekstur í Kvosinni heyri nánast sögunni til.  Ákvörðun var tekin um að leggja áherslu á aðrar verslanir fyrirtækisins sem eru Veiðihornið í Síðumúla 8 og Sportbúðin Krókhálsi 5 en um leið flytja gamla góða Veiðimanninn inn í nútímann úr Kvosinni og gera Veiðimanninn að veiðibúð allra landsmanna á internetinu.

Nútíma tækni býður upp á marga möguleika.  Nú 70 árum frá því Albert Erlingsson stofnaði verslun sína á heimili sínu að Brávallagötu í Reykjavík opnar Veiðimaðurinn nú á nýjum stað, í tölvunni þinni.

Njóttu þess að sitja heima og heimsækja um leið Veiðimanninn, elstu veiðibúð landsins.

Deila |


Til baka

Veiðihornið | Síðumúli 8 | 108 Reykjavík | sími 568 8410

veidihornid@veidihornid.is