10.6.2011 - Góšar fréttir fyrir endurhlešslumenn.... og konur Endurhleðsluvörur streyma í hús.
Við erum að taka upp fyrstu sendingu okkar af endurhleðsluverkfærum frá Redding. Í þessari fyrstu sendingu okkar eru "dæjar" í ýmsum hlaupvíddum, pressur, ýmis handverkfæri auk tveggja gerða hleðslusetta.
Nú nýverið tókum við einnig upp sendingu frá Smart Reloader en meðal helstu vara sem við fengum þaðan eru "digital" vogir með sjálfvirkum skammtara, þvottavélar fyrir skothylki og ýmis handverkfæri.
Þá má geta þess að við höfum gert samkomulag við framleiðanda og dreifingaraðila í Evrópu um betra verð á ameríska hágæðapúðrinu okkar.
Nú þegar má sjá nýtt og betra verð á Hodgdon, IMR og Alliant púðri hér í netverslun okkar. Eitthvað af púðrinu sem við fengum í fyrstu sendingu er að verða uppselt en ný sending er væntanleg í september.
Nýju vörurnar frá Redding og Smart Reloader verða fáanlegar hér í netverslun innan fárra daga.
Til baka
|